Hátt hlutfall íbúða selst enn á yfirverði

Húsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Húsnæði á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi

Alls voru 613 viðskipti með stakar íbúðir á landinu öllu í nóvember miðað við árstíðaleiðréttar tölur en til samanburðar voru þau 644 í október. Flest urðu þau nærri 1.500 í mars 2021.

Þrátt fyrir að flestir mælikvarðar sýni að markaðurinn sé að kólna hratt þá er enn tiltölulega hátt hlutfall íbúða sem selst á yfirverði. Á höfuðborgarsvæðinu seldust 17,4% íbúða í desember á yfirverði samanborið við 19,3% í nóvember og 23,9% í október, að því er kemur fram í mánaðarskýrslu HMS.

Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,6% í desember frá fyrri mánuði. Tólf mánaða hækkun leiguverðs nemur nú 10,3% og hefur ekki verið meiri frá því í byrjun árs 2018.

Munurinn aukist

Bankarnir hækkuðu breytilega óverðtryggða vexti á íbúðalánum um 0,25 prósentustig í desember sem viðbragð við jafn hárri hækkun stýrivaxta í nóvember. Nú eru lægstu vextir hjá bönkunum að meðaltali 7,6%.

„Í síðustu mánaðarskýrslu var fjallað um hvernig óverðtryggðir vextir væru orðnir óhagstæðari en verðtryggðir gangi verðbólguspá Seðlabankans eftir. Nú þegar óverðtryggðir vextir hafa hækkað meira hefur munurinn aukist. Vinsældir verðtryggðra lána aukast hratt en eru mun meiri hjá bönkunum. Hjá bönkunum eru verðtryggð lán 86% af hreinum nýjum lánum en hjá lífeyrissjóðunum eru þau aðeins 24%,“ segir í skýrslunni.

Íbúðaverð lækkaði um 0,7%

Íbúðaverð lækkaði um 0,7% í desember frá fyrri mánuði miðað við vísitölu íbúðaverðs. Þar af lækkaði verð á sérbýli um 2,1% en verð á íbúðum í fjölbýli um 0,3%. Á síðustu þremur mánuðum hefur íbúðaverð lækkað um 0,4% á höfuðborgarsvæðinu sem jafngildir 1,6% á ársgrundvelli. Þetta er í fyrsta sinn síðan í apríl 2019 sem þriggja mánaða breytingin er neikvæð.

Í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins lækkaði íbúðaverð um 2,7% á milli mánaða og á síðustu þremur mánuðum hefur það lækkað um 4,4%. Annars staðar á landsbyggðinni hækkaði íbúðaverð um 1,5% á milli mánaða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert