Nýr heitavatnstankur í Reykjavík fyrir næsta vetur

Nú eru þrír tankar á Reynisvatnsheiði fyrir ofan Grafarholtið. Gert …
Nú eru þrír tankar á Reynisvatnsheiði fyrir ofan Grafarholtið. Gert hafði verið ráð fyrir þeim fjórða og verður hann byggður í ár og á að vera tilbúinn fyrir næsta vetur. Mynd/Veitur

Nýr heitavatnstankur verður reistur á Reynisvatnsheiði á þessu ári, en honum er meðal annars ætlað að bregðast við aukinni heitavatnsþörf sem hefur komið í ljóst á höfuðborgarsvæðinu í kuldatíðinni í vetur. Á tankurinn að gagnast fyrir alla Reykjavík og önnur svæði þar sem Veitur eru með starfsemi. 

Kostar 600 milljónir

Geymirinn verður af sömu stærð og þrír aðrir geymar sem eru nú þegar á heiðinni, en þessi nýi mun í raun loka ferningnum sem tankarnir munu mynda. Verður tankurinn með 32 metra þvermál og 10 metra hár og mun hann rúma 9.000 rúmmetra af vatni. Áætlaður kostnaður við framkvæmdina hleypur á um 600 milljónum.

Heimir Hjartarson, sérfræðingur í fjárfestingum hitaveitu hjá Veitum, segir í samtali við mbl.is að verið sé að auka svigrúm í kerfinu með þessari framkvæmd. „Eftir svona langt kuldatímabil í vetur kom í ljós þörf fyrir bættar rekstraraðstæður fyrir vatn frá virkjun. Við erum að auka bufferinn í tönkunum þannig að hægt sé m.a. að bregðast betur við bilunum,“ segir hann.

Tankarnir eru nú þrír á Reynisvatnsheiði, en verða fjórir síðar …
Tankarnir eru nú þrír á Reynisvatnsheiði, en verða fjórir síðar á árinu. Hægt er að þysja út og inn á kortinu með að smella á það. map.is

Flýttu framkvæmdum eftir harðan vetur 

Jafnframt segir hann tankinn bæta möguleika Veitna til að bregðast við háum toppum í notkun. Vísar hann m.a. til þess að sveiflan sé oft mikil seinni part dags, en svo um nætur fyllast tankarnir aftur.

Framkvæmdin var á áætlun hjá Veitum að sögn Heimis, en aðstæðurnar í vetur urðu til þess að fyrirtækið ákvað að flýta þeim um eitt  eða tvö ár. Segir hann að áætlað sé að fara í útboð fljótlega og að tankurinn verði reistur fyrir næsta vetur og muni þar með gagnast sem viðbót við kerfið komi aftur til harðs vetur eftir ár.

Ekki sama hvar tankarnir eru

Tveimur af sex heitavatnstönkum í Perlunni var lokað á sínum tíma. Spurður hvort ekki hefði verið hægt að nýta þá núna segir Heimir þá ekki hafa sömu virkni fyrir kerfið. Með því að hafa tankana á Reynisvatnsheiði þar sem þeir eru fyrsta snerting við höfuðborgarsvæðið þá nýtast þeir best fyrir allt svæðið, en ef taka ætti aftur í notkun geyma í Perlunni þá myndu þeir aðeins nýtast fyrir það svæði sem liggur þaðan, í þessu tilfelli aðallega fyrir Vesturbæinn. „Þá ertu ekki að sinna öllu höfuðborgarsvæðinu,“ segir Heimir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert