Hellisheiði og Þrengslum lokað

Akstursskilyrði eru slæm á Hellisheiði og í Þrengslum.
Akstursskilyrði eru slæm á Hellisheiði og í Þrengslum. mbl.is/Óttar

Veginum um Hellisheiði og Þrengsli hefur verið lokað vegna veðurs, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.

Akstursskilyrði eru þar afar slæm eins og mbl.is greindi frá í dag.

Slæmt skyggni, akstursskilyrði og dimm él eru á Reykjanesbrautinni sem og víðar á Suður- og Suðvesturlandi og biður Vegagerðin vegfarendur því að aka með gát.

Hellisheiðinni var lokað í gær en hún var opnuð aftur í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert