Stúdentar marseruðu á fund ráðherra

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tók á móti stúdentum við Ráðherrabústaðinn.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra tók á móti stúdentum við Ráðherrabústaðinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fulltrúar frá stúdentaráði Háskóla Íslands gengu í morgun frá háskólanum að ráðherrabústaðnum þar sem ríkisstjórnarfundur fór fram. Afhentu þau þar Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, samantekt á sjónarmiðum ráðsins þegar kemur að fjármögnun háskólans.

Hafa stúdentar meðal annars mótmælt þeim óskum háskólayfirvalda að fá að hækka skrásetningargjald við skólann upp í 95 þúsund krónur.

Héldu stúdentar á tveimur stórum fánum þar sem annars vegar stóð: „Háskólann vantar 1.000.000.000“ og hins vegar: „Stúdentar splæsa“.

Stúdentar gengu frá Háskóla Íslands að ráðherrabústaðnum og afhentu þar …
Stúdentar gengu frá Háskóla Íslands að ráðherrabústaðnum og afhentu þar kröfur sínar. Á 14 metra löngum fánum stúdenta stóð annars vegar „Háskólann vantar 1.000.000.000“ og hins vegar „Stúdentar splæsa.“ mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lokahnykkur á vikulangri herferð

Auk þess að afhenda samantekt sína óskuðu stúdentar svara frá ráðherrum við eftirfarandi spurningum:

  1. Hvað verður gert til þess að bregðast við stöðu Háskóla Íslands núna?
  2. Verður niðurskurðurinn sem boðaður er í fjármálaáætlun leiðréttur?
  3. Mun ríkisstjórnin standa við loforð sín um stóraukin fjárframlög til háskólastigsins?
  4. Verður lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um opinbera háskóla sem heimilar hækkun skrásetningargjaldsins?

Þessi ganga var lokahnykkur á vikulangri herferð stúdentaráðs. Segir í tilkynningu að „markmið herferðarinnar er að vekja athygli á undirfjármögnun Háskóla Íslands og áhrifum hennar á skólastarfið, stúdenta og samfélagið allt og þrýsta á stjórnvöld að standa við gefin loforð um fjármögnun opinberrar háskólamenntunar, í stað þess að varpa byrðinni enn frekar yfir á stúdenta í formi hærra skrásetningargjalds.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert