Nafn mannsins sem lést

mbl.is

Maðurinn sem lést í vinnuslysi á sveitabýli í Ásahreppi í Rangár­valla­sýslu á föstudag hét Guðjón Björnsson. Hann var fæddur árið 1983 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Guðjón var bóndi og rak kúabú ásamt konu sinni á Syðri-Hömr­um 3 í Ásahreppi.

Rann­sókn­ar­deild lög­regl­unn­ar á Suður­landi fer með rann­sókn um tildrög slyssins en lög­regla verst allra frek­ari frétta af mál­inu að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert