Deilt um leit að íslensku gulli

Starfsleyfi vegna gullleitar í Þormóðsdal er útrunnið og verður ekki …
Starfsleyfi vegna gullleitar í Þormóðsdal er útrunnið og verður ekki endurnýjað að sinni. mbl.is/Sigurður Bogi

Starfsleyfi vegna gullleitar í Þormóðsdal er útrunnið og verður ekki endurnýjað að sinni. Óskað hefur verið eftir frekari gögnum um leitina að þessum dýrmæta málmi. Þormóðsdalur er í landi Mosfellsbæjar.

Það er fyrirtækið Iceland Resources sem hefur staðið fyrir tilraunaborunum til að kanna hvort gull leynist þar í vinnanlegu magni.

„Þetta er verkefni sem hófst fyrir nokkru og deilur hafa staðið um það,“ segir Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.

Hann segir að skipulagsyfirvöld í Mosfellsbæ hafi sett sig á móti því þar sem gullleitin sé ekki í samræmi við skipulagsáætlanir. 

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Kauptu vikupassa

Lestu meira með vikupassa!

Fáðu þér vikupassa fyrir 2.185 kr. og þú færð aðgang að öllu efni úr blaði dagsins í dag og næstu 6 daga.

Kaupa vikupassa

Aðrar áskriftarleiðir »