Snjóplógur og mjólkurbíll fastir á Fjarðarheiði

Björgunarsveitin Ísólfur stóð í ströngu ásamt öðrum viðbragðsaðilum á Austurlandi …
Björgunarsveitin Ísólfur stóð í ströngu ásamt öðrum viðbragðsaðilum á Austurlandi í dag. Ljósmynd/Haraldur M. Traustason

„Veðrið versnaði til muna og svo hressilega að nú er ég með plóginn fastan upp á Fjarðarheiði auk mjólkurbíls sem átti að fylgja yfir í dag,“ segir Jens Olsen Hilmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Egilsstöðum.

„Það er meiriháttar vinna fyrir höndum að reyna að frelsa þá úr þessu hvíta dufti,“ segir hann.

Til stóð að fylgja um 500 farþegum Norrænu yfir heiðina í fylgdarakstri en Jens segir Vegagerðina búna að blása fyrirhugaðan fylgdarakstur af enda sé algjörlega ófært að reyna á það og glórulaust að taka áhættu með líf og limi fólks.

Hann segir að Norræna muni taka við þeim farþegum ferjunnar sem eru fastir á Seyðisfirði í nótt og þurfa húsaskjól en að einhverjir séu á húsbílum og muni þeir gista í þeim.

Öllum fjallvegum lokað

Jens segir að búið sé að loka öllum fjallvegum á svæðinu.

„Við höfum lokað Fjarðarheiði, Vatnsskarði niður til Borgarfjarðar og því sem við köllum Fjöllin, sem er leiðin upp Jökuldal og Möðrudal og á Mývatn.“

Hann segist hafa mannskap uppi á fjallvegunum með bæði plóg og þá séu björgunarsveitir að koma fólki niður og yfir bæði norður eftir og austur eftir.

Taka stöðuna í fyrramálið

„Vonandi gengur veðrið svo niður og við náum að opna leiðir fyrir eða í kringum hádegi. Við ætlum að taka stöðuna aftur í fyrramálið,“ segir Jens Olsen Hilmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Egilsstöðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert