Rýming á Fáskrúðsfirði

Veðurstofan hefur vegna ofanflóðahættu ákveðið rýmingu á Fáskrúðsfirði. Um er að ræða reit númer 6.

Þetta kemur fram í tilkyningu frá lögreglunni.

Götur og húsnúmer sem um ræðir eru:

  • Skólavegur 10, 10a, 12, 14, 15, 16, 18
  • Hamarsgata 14, 15, 18, 23, 24, 25
  • Hafnargata 7, 8, 8a, 9 til 14 ( Fosshótel )

Fulltrúar aðgerðastjórnar eru núna að fara milli húsa og aðstoða og veita leiðbeiningar þeim er þurfa. Íbúar eru beðnir um að gefa sig fram í fjöldahjálparstöð í grunnskólanum á Fáskrúðsfirði eða hafa samband í síma 1717 er fyrirhugaður dvalarstaður liggur fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert