Matvælaráðuneytið ekki haft samband við Kára

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í dag.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir í samtali við mbl.is að matvælaráðuneytið hafi ekki leitað til Íslenskrar erfðagreiningar vegna rannsókna á riðuveiki. 

Kári Stefánsson, for­stjóri Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, sagði í kvöldfréttum RÚV á laugardag að hon­um hafi borist mörg sím­töl frá þing­mönn­um og ráðherr­um sem spurðu hvort mögu­leiki væri á að Íslensk erfðagrein­ing greini úr 200 þúsund sýn­um úr sauðfé.

Kári sagði að Íslensk erfðagreining hefði það nú til skoðunar að setja upp sérstaka rannsóknarstofu til að greina sýni úr ís­lensku sauðfé með þeim til­gangi að leita að hinni vernd­andi arf­gerð gegn riðu. 

Landbúnaðarháskólinn leggur mat á verndandi arfgerð

Svandís nefnir að Matvælastofnun hefur leitað til Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og óskað eftir mati á ræktun á verndandi arfgerð gegn sjúkdóminum til þess að byggja upp riðufrían fjárstofn hér á landi. 

„Það tekur langan tíma og við þurfum svör frá okkar besta vísindafólki til þess að leggja mat á það hvort að það sé tímabært á næstu árum að breyta um stefnu í þessum efnum,“ segir Svandís og bætir við að sú von liggi því fyrir í framtíðinni að losna við riðuveikina. 

En er til skoðunar í millitíðinni að nálgast veikina á annan hátt en að skera niður heilu fjárstofnana?

„Riða er mjög alvarlegur sjúkdómur sem endar með dauða. Samkvæmt þeirri þekkingu sem við höfum yfir að ráða núna þá er þetta eina leiðin, og ég fer að ráði yfirdýralæknis sem að leiðir þetta gagnvart ráðuneytinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert