Yfirdýralæknir tímabundið til ráðuneytisins

Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun (Mast), verður tímabundið í verkefnavinnu í Matvælaráðuneytinu frá 1. janúar til 31. maí.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Mast og segir þar að Sigurborg mun stýra rýni og endurskoðun á reglugerðum er varða dýrasjúkdóma með áherslu á riðu.

Þorvaldur H. Þórðarson er settur yfirdýralæknir á meðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert