Riða greinist í Húnaþingi vestra

Riðuveiki greindist í einu skimunarsýni fyrir helgi.
Riðuveiki greindist í einu skimunarsýni fyrir helgi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Riða greindist í skimunarsýni frá bænum Stórhóli í Húnaþingi vestra. Matvælastofnun barst tilkynning þess efnis frá tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum fyrir helgi.

Um er að ræða eitt jákvætt sýni úr tveggja vetra á. Á bænum Stórhóli eru um 600 kindur. 

Bærinn tilheyrir Húna- og Skagahólfi. Riða greindist síðast á bænum árið 2006 en á nágrannabæ hans árið 2021 að því er fram kemur í tilkynningu frá Matvælastofnun. Ekki hafði borið á sjúkdómseinkennum í kindinni né öðrum á bænum. 

Undirbúningur aðgerða er hafinn. Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað og áhersla lögð á að rekja hvert kindur af bænum hafa verið fluttar.

Sýni eru tekin út fullorðnu fé sem sent er til slátrunar og þau rannsökuð með tilliti til riðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert