ESA ávítar Ísland vegna blóðtöku úr hryssum

Mynd úr safni. Ísland hefur tvo mánuði til að koma …
Mynd úr safni. Ísland hefur tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ESA ákveður hvort fara skuli með málið lengra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ísland fékk í dag formlegt áminningarbréf Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þar sem kallað er eftir því að EES-reglum um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni sé réttilega beitt, að því er varðar blóðtöku úr fylfullum hryssum.

Ísland hefur tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ESA ákveður hvort fara skuli með málið lengra.

Í apríl 2022 upplýsti ESA íslensk stjórnvöld um að kvörtun hafi borist vegna reglna um blóðtöku á fylfullum hryssum. Blóðið er notað til að framleiða meðgönguhormón sem notað er til að auka og stýra frjósemi í dýrum, þar á meðal hjá svínum, kindum, geitum og kúm. Þetta kemur fram í tilkynningu ESA.

Brotlegt við reglur EES-samnings

Á grunni upplýsinga sem bárust frá Íslandi í tengslum við blóðtökuna, telur ESA að Ísland sé brotlegt við reglur EES-samningsins.

Hefur ESA komist að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt EES-tilskipuninni um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni, með því að fylgja ekki málsmeðferð og framkvæma ekki það mat sem þar er kveðið á um.

„Í samræmi við það markmið, mælir tilskipunin fyrir um tilteknar verndarráðstafanir sem þarf að tryggja þegar tekin er ákvörðun um hvort heimila skuli tiltekið verkefni. Þar sem Ísland er þeirrar skoðunar að blóðtaka úr fylfullum hryssum falli ekki undir gildissvið íslensku reglugerðarinnar sem innleiðir tilskipunina, er þessum verndarráðstöfunum ekki beitt sem slíkum í framkvæmd.

Sem dæmi má nefna að mat á verkefni í samræmi við tilskipunina er ekki framkvæmt áður en leyfi er veitt fyrir verkefninu. Það hefur meðal annars í för með sér að ekki er hægt að tryggja að fram fari mat á hvort í staðinn sé hægt að nota aðra vísindalega fullnægjandi aðferð, sem ekki felur í sér notkun lifandi dýra. Að sama skapi er matið á verkefninu nauðsynlegt til þess að sá skaði sem líklegt er að dýrið verði fyrir sé veginn og metinn, á móti þeim ávinningi sem búist er við að verkefnið skili,“ segir í tilkynningu ESA.

Þá telur ESA að með því að samþykkja nýja innlenda reglugerð um blóðtöku úr fylfullum hryssum í ágúst 2022, hafi Ísland aukið enn frekar á réttaróvissu um blóðtökuna og mistekist að tryggja skilvirkni tilskipunarinnar.

Áminningarbréfið er fyrsta skrefið í samningsbrotaferli gegn EES í EFTA-ríki. Ísland hefur nú tvo mánuði til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en ESA ákveður hvort fara skuli með málið lengra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert