Ekki saman komin hér í fagnaðarskyni

Katrín flytur opnunarávarp á leiðtogafundinum í Eldborg í Hörpu.
Katrín flytur opnunarávarp á leiðtogafundinum í Eldborg í Hörpu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði í dag leiðtogafund Evrópuráðsins í Hörpu með ávarpi til viðstaddra. Þar lagði hún línurnar fyrir það sem rætt verður á fundinum.

Katrín segir að markmið fundarins séu þrjú; að ítreka stuðning við Úkraínu, að endurnýja skuldbindingar er varða mannréttindi og að takast á við krefjandi verkefni um allan heim, „með því að standa fast við okkar gildi.“

Hóf ræðuna á frönsku

„Það er mér sönn ánægja og forréttindi að bjóða ykkur velkomin til Íslands,“ sagði hún í upphafi og bauð svo alla velkomna á frönsku.

Hún hélt áfram á frönsku og sagði að Evrópuráðið hafi frá stofnun þess verið leiðbeinandi fyrir aðilaríki „til þess að ná framförum í mannréttindum, lýðræði og réttarríki“.

Hún sagði að ef gildi um jafnrétti handa öllum væru enn þann dag í dag talin róttækar hugmyndir „af sumum“, en að það sé grundvöllur fyrir mannréttindasáttmálann.

Evrópa meira en bara heimsálfa

„Við erum ekki saman komin hér í fagnaðarskyni, heldur í skugga stríðs. Árás Rússa á Úkraínu er alvarlegasta árás á frið og öryggi í Evrópu frá seinni heimstyrjöld; auk gríðarmikils mannfalls hefur hún leitt til blóðbaðs, nauðgana, og morða á óbreyttum borgurum.“

Hún ávarpaði síðan Úkraínumenn og Selenskí, forseta Úkraínu, og sagði: „Við berum gífurlega mikla virðingu fyrir ykkar ákveðni til þess að berjast á móti. Við munum höldum áfram að standa með ykkur,“ sagði hún og kallaði einnig á Rússland til þess draga hersveitir sínar úr Úkraínu „sem sín fyrstu skref til þess að binda enda á stríðið.“

Frá setningu leiðtogafundarins í Eldborg í Hörpu.
Frá setningu leiðtogafundarins í Eldborg í Hörpu. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við krefjumst einnig ábyrgðar og réttmæts friðar. Fórnarlömb stríðsins hafa þann rétt að á þau sé hlustað og að þau falli ekki í gleymskunnar dá.“

„Þetta tilgangslausa stríð í heimsálfunni okkar fer gegn öllum þeim gildum sem við sameinuðum okkur um við stofnun þessa ráðs; það er alvarleg árás gegn þeim gildum sem gera Evrópu að einhverju stærra en bara heimsálfu, heldur að sameiginlegum málstað.“

Lýðræðið ekki sjálfsagður hlutur

„Á undanförnum árum höfum við orðið vitni að pólitískum tilraunum til þess að grafa undan grunngildum lýðræðisins, kollvarpa starfsháttum þess og veikja réttarríkið,“ sagði hún og bætti við lýðræði hafi verið undir miklu álagi vegna ýmiss konar stjórnarfarslegra átaka.

„Við stöndum frammi fyrir miklum og ofbeldisfullum árásum gegn réttindum kvenna og frelsi, jafnrétti kynjanna og réttindum hinsegin fólks,“ segir hún. „Við megum ekki gleyma því að hugmyndin að lýðræði sem liggur að baki mannréttindasáttmála Evrópu og félagsmálasáttmála Evrópu er fyrir alla,“ segir hún.

Hugmyndin segi að lýðræðið krefjist þess að hugað sé að réttindum og hagsmunum allra, „líka þeirra sem eru viðkvæmastir fyrir brotum á grundvallarréttindum sínum.“

„Hugtakið „mannréttindi handa öllum“ heldur áfram að vera umdeilt– og án mótspyrnu geta þessi seinteknu réttindi horfið á svipstundu, eða visnað í þögn. Það er einnig áminnig um að lýðræðislega stjórnmálakerfið er ekki sjálfsagt; það getur aðeins lifað af ef það er inngróið í samfélag sem leyfir því að dafna.“

Meginmarkmiðin þrjú

Katrín sagði leiðtogafundinn hafa þrjú meginmarkmið. Hið fyrsta sé að ítreka stuðning við Úkraínu, „svo hægt sé að móta markvissar aðgerðir til þess láta ábyrgð á stríðsglæpum og styrkja hlutverk Evrópuráðsins sem leiðandi mannréttindasamtök.“

Annað meginmarkmiðið sé að endurnýja skuldbindingu til „þeirra lýðræðislegu mannréttindagilda sem samfélög okkar byggja á og sem við verðum að hlúa að og vernda“.

„Og að lok­um, með því að standa fast við okk­ar gildi reyn­um við að tak­ast á við krefj­andi verk­efni um all­an heim. Lofts­lags­vá­in og líf­fræðileg­ur fjöl­breyti­leiki hef­ur áhrif á alla heims­hluta og hækk­andi hita­stig kynd­ir und­ir nátt­úru­ham­far­ir, fæðu- og vatns­leysi, efna­hagstrufl­an­ir og styrj­ald­ir,“ sagði hún.

„Stig­hækk­andi þróun gervi­greind­ar vek­ur þung­ar spurn­ing­ar um skaðleg en einnig gagn­leg áhrif henn­ar – spurn­ing­ar um eðli þekk­ing­ar, áhrif henn­ar á upp­lýs­ing­ar og að lok­um áhrif henn­ar á lýðræðið.“

Vill gera sem mest úr þessu tæki­færi

Hún seg­ir þeim bera sú skylda að gera fund­inn að þýðing­ar­miklu verk­efni. „Við erum hér til þess að ræða vanda­mál þar sem þörf er á áríðandi aðgerðum– leyf­um okk­ur að gera sem mest úr þessu tæki­færi.“

„Að lok­um vona ég að leiðtoga­fund­ar­ins verði minnst sem viðburðar þar sem leiðtog­ar Evr­ópu sýndu sam­stöðu með Úkraínu“ sagði Katrín. Hún kveðst einnig vona að fund­ar­ins verði minnst sem vett­vangs til þess að „ít­reka grunn­gildi á stríðstím­um og aft­ur­halds­tíma lýðræðis“.

„Til þess að tryggja sam­eig­in­leg­an málstað, Evr­ópu, mun­um við geta tek­ist á við þær gríðar­stóru áskor­an­ir sem eru framund­an,“ sagði hún að lok­um lýsti því svo yfir að leiðtoga­fund­ur Reykja­vík­ur í Evr­ópuráðinu væri form­lega haf­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert