Lok, lok og læs

Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu minnir á að leiðtogafundur Evrópuráðsins fari fram í miðborg Reykjavíkur í dag og á morgun. Ætla megi að fundurinn hafi nokkur áhrif á daglegt líf íbúa á höfuðborgarsvæðinu þessa daga. 

Hún bendir á, að af öryggisástæðum verði götur í kringum Hörpu lokaðar fyrir umferð ökutækja meðan á fundinum stendur, en hægt verði að fara um svæðið gangandi og á hjóli. Þetta eigi hins vegar ekki við um svæðið næst Hörpu, sem sé lokað almenningi meðan á þessu stendur.

Kort/Lögreglan

„Þá má gera ráð fyrir umferðartöfum um allt höfuðborgarsvæðið vegna aksturs sendinefnda í lögreglufylgd til og frá Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli. Áhrifin verða hvað mest síðdegis, bæði í dag og á morgun. Vegfarendum á höfuðborgarsvæðinu er því vinsamlegast bent á að áætla lengri ferðatíma en venjulega til að aka á milli staða dagana sem leiðtogafundurinn fer fram.

Þetta á líka við um vegfarendur sem hyggjast aka um Reykjanesbraut, það er á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins þessa sömu daga – ekki síst flugfarþega. Engar almenningssamgöngur verða innan lokunarsvæðisins. Strætó ekur eftir breyttum akstursleiðum á meðan á lokuninni stendur til kl. 19.00 miðvikudaginn 17. maí,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. 

Samsett mynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert