Í dag er spáð suðvestlægri átt og 3-10 metrum á sekúndu. Skýjað verður og súld eða rigning með köflum, en yfirleitt verður þurrt um landið austanvert.
Hiti verður á bilinu 8 til 17 stig, mildast fyrir austan.
Bætir heldur í vind á morgun, en dregur úr úrkomu og kólnar.