Gönguparið fannst heilt á húfi

Ferðamennirnir sem leitað var að við Kerlingarfjöll eru fundnir heilir …
Ferðamennirnir sem leitað var að við Kerlingarfjöll eru fundnir heilir á húfi. mbl.is/Sigurður Bogi

Erlendir ferðamenn sem leitað var að í Kerlingarfjöllum í gærkvöld fundust heilir á húfi eftir miðnætti í nótt. Lög­regl­an á Suður­landi kallaði út hóp björg­un­ar­sveita í Árnes­sýslu til þess að aðstoða við leit að göngup­arinu.

Parið hringdi sjálft eft­ir aðstoð. Þau voru á göngu, en vissu ekki hvar þau voru og fundu ekki leið til byggða. 

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Land­helg­is­gæsl­unni var ekki óskað eft­ir aðstoð gæsl­unn­ar við leit­ina. Þoka var á svæðinu og því var ekki hægt að not­ast við þyrlu við leit­ina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert