110 milljónir til að hraða útbreiðslu sérstakrar arfgerðar

Riða er ólæknandi sjúkdómur, en arfgerðin sem fundist hefur er …
Riða er ólæknandi sjúkdómur, en arfgerðin sem fundist hefur er verndandi gagnvart riðusmiti. mbl.is/Skúli Halldórsson

Verja á 110 milljónum króna til innleiðingar á verndandi arfgerð gegn riðuveiki samkvæmt fjárlögum sem kynnt voru í vikunni. Er það gert svo hægt sé að innleiða sem hraðast þessa arfgerð í íslenska sauðfjárstofninn og þar með vinna gegn riðuveikitilfellum.

Í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu er vísað til greinargerðar Landbúnaðarháskóla Íslands þar sem fram kemur að hægt sé að innleiða verndandi arfgerðir gagnvart riðusmiti á takmörkuðum svæðum. Þannig verði yfir 80% fjár á mestu áhættusvæðunum arfblendið eða arfhreint innan fimm ára og þar af leiðandi ólíklegt til að veikjast af riðu.

Matvælastofnun hefur haft samráð við viðeigandi aðila, m.a. fagráð í sauðfjárrækt og deild sauðfjárbænda hjá Bændasamtökum Íslands til að hraða innleiðingu verndandi arfgerða. Sérstakur sérfræðingahópur um riðuveiki var einnig skipaður Matvælastofnun til ráðgjafar. Yfirdýralæknir leiðir þessa vinnu af hálfu stjórnvalda, sem sá aðili sem ber ábyrgð á dýraheilbrigði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert