Myndir: Svona lítur Grindavík út í dag

Sprunga hefur gengið í gegnum bæinn og sig mælist 125 …
Sprunga hefur gengið í gegnum bæinn og sig mælist 125 sentimetra frá því jarðhræringar hófust. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ljósmyndari mbl.is, Eggert Jóhannesson, fékk í dag tækifæri til að fljúga dróna yfir svokallað rautt svæði, eða það svæði sem einna helst þykir hættulegt að dvelja á í Grindavík um þessar mundir. 

Á því svæði liggur sprunga í gegnum bæinn.  

Erfitt er að sjá úr lofti hvort bæst hafi í skemmdir umfram það sem var fyrir. Í dag bárust fregnir af því að sig hefði numið 5 sentimetrum á sólarhring og er því sig orðið 1,25 m frá því hræringarnar hófust.

Mesta jarðskjálftavirknin hefur færst fjær Grindavík í átt að Hagafelli sem er norður af bænum og skammt austur af Þorbirni. 

Sérstakt er að sjá Grindavík nær mannlausa en eingöngu var …
Sérstakt er að sjá Grindavík nær mannlausa en eingöngu var útvöldum hleypt inn í bæinn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Engar sjáanlegar skemmdir eru á Grindavíkurkirkju.
Engar sjáanlegar skemmdir eru á Grindavíkurkirkju. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nýjar sprungur uppgötvuðust í gær í Sundahverfi. Hér er sprunga …
Nýjar sprungur uppgötvuðust í gær í Sundahverfi. Hér er sprunga sem liggur nærri íþróttamiðstöðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Óljóst er hvort miklar skemmdir hafi orðið á íþróttahúsinu en …
Óljóst er hvort miklar skemmdir hafi orðið á íþróttahúsinu en sprungan liggur upp við það. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert