Fékk 20 milljóna króna símtal

Kona á fimmtugsaldri fékk símtal frá Íslenskri getspá þar sem henni var tilkynnt að hún hefði verið ein með allar tölur réttar í Lottó síðasta laugardag og fyrir vikið 20 milljónum krónum ríkari.

Fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá að konan og hennar nánasta fjölskylda hafi að undanförnu tekist á við sorg og erfiðar tilfinningar í kjölfar fráfalls náins fjölskyldumeðlims.

Ákvað á síðustu stundu að velja sjálfval

„Taldi hún því allar líkur á að hún hefði fengið dálitla hjálp að handan því í stað sinna hefðbundnu lottótalna ákvað hún á síðustu stundu að velja sjálfval á lotto.is – sem skilaði henni stóra vinningnum síðastliðið laugardagskvöld og langþráðum gleðitárum um leið,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert