Landris heldur áfram en enginn mælanlegur órói

Síðasta gos var 8. febrúar.
Síðasta gos var 8. febrúar. mbl.is/Hörður Kristleifsson

„Það er búið að vera tiltölulega rólegt á Reykjanesskaganum í dag. Það kom smá skjálftahrina við kvikuganginn rétt sunnan við Hagafell í nótt sem dó fljótt út.“

Þetta segir Sigríður Kristjánsdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Sigríður segir að skjálftahrinan sem varð í nótt hafi komið þar sem gaus í janúar og einnig hafi verið virkni þar sem gosin komu upp í desember og núna í febrúar.

„Þetta kannski segir okkur að séu svæðin sem eru veikust. Landrisið heldur áfram og það hafa þannig sé ekki orðið neinar breytingar á því og enginn órói er mælanlegur eins og er. Staðan er óbreytt. Það er yfirvofandi gos á næstu dögum og það er það sem við erum undirbúin fyrir,“ segir Sigríður.

Margir smáskjálftar mælst við Eiturhól

Margir smáskjálftar hafa mælst við Eiturhól á Mosfellsheiði í dag. Spurð hvað sé í gangi þar segir Sigríður:

„Það hafa komið skjálftar þar áður. Það er einhver niðurdæling á þessum slóðum en það er að mig minnir grunnar niðurdælingaholur svo það er erfitt að tengja þetta við þær. Þetta eru bara einhverjar hreyfingar eins og gengur og gerist.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert