Stýrihópur endurskoðar lög um rammaáætlun

Guðlaugur Þór Þórðarson á fundinum í dag þar sem tillögurnar …
Guðlaugur Þór Þórðarson á fundinum í dag þar sem tillögurnar voru kynntar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur falið starfshóp að endurskoða lög um verndar- og orkunýtingaráætlun, eða rammaáætlun.

Lögin, sem voru samþykkt 2011, kveða á um að vinna skuli heildaráætlun til langs tíma um vernd og nýtingu landsvæða til orkuvinnslu. Þriðji áfangi rammaáætlunar var samþykktur á Alþingi árið 2022. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um endurskoðun þessara laga, til að tryggja megi ábyrga og skynsamlega nýtingu orkuauðlinda á Íslandi.

Ýmis gagnrýni hefur komið fram á ferli rammaáætlunar, þá sérstaklega tímalengd ferlisins, segir í tilkynningu frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Slík gagnrýni hefur m.a. komið frá samflokksmönnum orkuráðherra úr Sjálfstæðisflokknum, þar á meðal Jóni Gunnarssyni, þingmanni og fyrrverandi ráðherra.

Starfshópurinn býr til nýtt frumvarp

„Starfshópurinn sem nú hefur verið skipaður mun m.a. horfa til gagnrýninnar sem ferli rammans hefur sætt við vinnu sína,“ er haft á eftir orkuráðherra í tilkynningunni.

Starfshópurinn skoðar og gerir tillögur til ráðherra í formi frumvarps og greinargerðar um endurskoðun rammaáætlunarinnar. Hann á að leggja sérstaka áherslu á að auka skilvirkni í kerfinu í heild og einföldun regluverks.

„Mikilvægt er að endurskoðað ferli stuðli að markmiðum Íslands um orkuöryggi, orkusjálfstæði og sjálfbærni verði náð, jafnhliða því að með því skapist traust og tortryggni verði útrýmt. Endurskoðað ferli þarf að tryggja að sátt geti náðst um einstaka virkjunarkosti, sem og þau svæði sem njóta eiga verndar,“ segir ráðherra enn fremur í tilkynningunni.

Hilmar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður formaður stýrihópsins.
Hilmar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður formaður stýrihópsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Tilbúið á næsta löggjafarþingi

Hilmar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður formaður stýrihópsins. Með honum í hópnum sitja Björt Ólafsdóttir, fyrrum ráðherra umhverfis- og auðlindamála úr röðum Bjartrar framtíð, og Kolbeinn Óttarsson Proppé. fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna.

Með hópnum starfa Sigríður Svana Helgadóttir og Hafsteinn S. Hafsteinsson, lögfræðingar í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Starfshópnum á að hafa ítarlegt samráð við hagsmunaaðila sem hafa með málefni orkunýtingar og náttúruverndar að gera.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að leggja fram frumvarp til laga á grundvelli tillagna hópsins eigi síðar en á næsta löggjafarþingi, segir að lokum í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert