Nafn unga mannsins sem lést á Heiðmerkurvegi

Ungi maðurinn sem lést í bifhjólaslysi á Heiðmerkurvegi í síðustu viku hét Hrafn Breiðfjörð Ellertsson. Hann var fæddur árið 2004 og var búsettur á Álftanesi.

Útför hans fer fram í Víðistaðakirkju mánudaginn 18. mars kl 15:00.

Í tilkynningu frá lögreglu í kjölfar slyssins kom fram að hann hafi ekið bifhjóli vestur Heiðmerkurveg, en virst hafa misst þar stjórn á því og hafnaði hjólið utan vegar.

Til­kynn­ing um slysið barst klukk­an 18.19 fimmtudaginn 7. mars og var hann flutt­ur á Land­spít­al­ann. Hann var úr­sk­urðaður lát­inn skömmu eft­ir kom­una þangað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert