Voru á árshátíð þegar gosið hófst

Neyðarstjórn fundar núna.
Neyðarstjórn fundar núna. Skjáskot/mbl.is

Neyðarstjórn HS Orku fundar nú vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Fylgst er náið með stöðunni.

„Það er enn þá verið að átta sig á því hversu stórt þetta nákvæmlega er, hvar þetta er og hvernig hraun mun renna. Við fylgjumst náið með og erum í viðbragði,“ segir Tómas Már Sigurðsson, for­stjóri HS Orku, í samtali við mbl.is.

Árshátíð HS Orku fer fram í kvöld. Hún var nýbyrjuð þegar eldgos hófst í kvöld og þurftu því þeir sem eiga sæti í neyðarstjórn að yfirgefa árshátíðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert