Unglingur festist í dekkjarólu

Slökkviliðið fór á vettvang.
Slökkviliðið fór á vettvang. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Unglingur sat fastur í dekkjarólu á leiksvæði á skólalóð í Hafnarfirði um níuleytið í gærkvöldi.

Lögreglan var búin að losa hann þegar slökkviliðið kom á vettvang, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Fleiri unglingar höfðu verið á staðnum þegar óhappið varð. Ekki þurfti að flytja þann sem festist í dekkjarólunni á slysadeild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert