Eldur kviknaði í bíl í Hafnarfirði

Eldurinn kviknaði í nótt.
Eldurinn kviknaði í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eldur kviknaði í bíl við verslun Iceland í Staðarbergi í Hafnarfirði í nótt.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var bíllinn alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang og var eldurinn slökktur snarlega.

Um lítinn sendiferðabíl var að ræða og er hann ónýtur eftir eldinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert