Áfram lokað vegna snjóflóðahættu

Snjóflóðahætta er á Flateyrarvegi.
Snjóflóðahætta er á Flateyrarvegi. mbl.is/Rax

Áfram verður lokað á Skutulsfjarðarbraut og Hnífsdalsvegi vegna snjóflóðahættu. Mikið hefur snjóað í nótt og skafið í skafla.

Staðan verður endurmetin þegar úrkoma minnkar en útlit er fyrir að það verði ekki næstu klukkustundirnar, að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum.

Aðrir vegir á norðanverðum Vestfjörðum verða ekki skoðaðir á næstunni með tilliti til snjóflóðahættu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert