Eftirlýstur maður handtekinn í stigagangi

Lögreglumaður sem var á leið til vinnu kom auga á …
Lögreglumaður sem var á leið til vinnu kom auga á manninn og tilkynnti lögreglu um staðsetningu hans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eftirlýstur maður var handtekinn í stigagangi í fjölbýlishúsi miðsvæðis í höfuðborginni. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.

Lögreglumaður sem var á leið til vinnu kom auga á manninn og tilkynnti kollegum sínum um staðsetningu hans. Hinn grunaði var handtekinn og er nú vistaður í fangageymslu lögreglu.

Annar maður sást klifra yfir hlið á lokuðu athafnasvæði fyrirtækis í Laugardalnum. Lögregla fann manninn skammt hjá í yfirgefnu húsnæði og var hann handtekinn.

Einnig var tilkynnt um innbrot á vinnusvæði í Hafnarfirði og innbrot í bifreið í Árbænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert