Guðfinnur í hlé vegna veikinda

Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarfulltrúi í Garðabæ.
Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarfulltrúi í Garðabæ. Ljósmynd/Garðabær

Guðfinnur Sigurvinsson bæjarfulltrúi í Garðabæ, hefur tekið sér hlé frá bæjarstjórnarstörfum vegna veikinda og annarra persónulegra ástæðna. Þessu greinir Guðfinnur frá í færslu á Facebook. 

Hyggst hann snúa aftur í síðasta lagi um sumarbyrjun samkvæmt ráðleggingum lækna. Mun hann áfram sinna aðalstarfi sínu sem hárskeri en segist ekki meiru anna eins og sakir standa. 

Þakkar Guðfinnur öllum þeim sem eru með honum í bæjarstjórn og nefndarstörfum fyrir góðan skilning að undanförnu. Þá kveðst hann taka skyldur sínar sem bæjarfulltrúi alvarlega og segist þykja vænt um stuðning í prófkjöri og sveitarstjórnarkosningunum sjálfum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert