Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Locatify hefur gefið út öppin Gea Norvegica og Magma Geopark í samstarfi við jarðvanga í Noregi. Smáforritin eru sett upp í Creator CMS-kerfi Locatify sem gerir notendum kleift að setja upp sín eigin leiðsögu- og ratleikjaforrit á einfaldan hátt.
Í nýju öppunum er hægt að hlaða niður snjallleiðsögnum, hlusta á frásagnir, skoða myndir og kort án þess að vera á söguslóðum eða nota gps til að virkja efnið sjálfkrafa á réttum stöðum. Jafnframt er gestum jarðvanganna boðið í ratleiki þar sem þeir læra að þekkja umhverfið meðan á heimsókn stendur.
Jarðvangarnir sjá sér hag í að nota forritin jafnt fyrir skólahópa og ferðalanga sem leika sér um leið og þeir kynnast sérstöðu landsvæðanna.
Einnig er komið út grafreitaforritið Volksbund sem unnið var í samstarfi við Audibits og Volksbund í Þýskalandi. Audibits sá um hönnun og uppsetningu forritsins í vefkerfinu en það er unnið út frá gagnagrunni Volksbund-samtakanna í Þýskalandi, sem halda utan um skrásetningu grafreita þýskra hermanna.
Nýja appið er notað innandyra á sýningu Volksbund í Berlín en QR-kóðar eru notaðir til að virkja frásagnir á réttum stöðum. Fleiri leiðsögnum utandyra verður bætt við í forritið sem munu vísa notendum á grafir þýskra hermanna í Evrópu.