Hið ísilagða tungl Satúrnusar, Enkeladus, gæti verið vænlegasti staðurinn til að leita lífs utan jarðarinnar.
Vísindamenn telja að undir ísnum á tunglinu gæti verið að finna heitar uppsprettur á hafsbotninum. Slíkt geti, eins og við þekkjum á jörðinni, skapað aðstæður til lífs. Þetta er niðurstaða rannsókna sem Cassini-geimfar NASA hefur stundað síðustu misseri.
Í frétt BBC um málið segir að slíkar uppsprettur þurfi ekki að þýða að líf sé að finna á þessu litla tungli. Umhverfis þess gæti verið líflaust með öllu.
Hins vegar telja vísindamenn að þetta gefi tilefni til að fara í fleiri leiðangra á svæðið með þróaðri mælitæki. „Við erum helvíti vissir að innhafið á Enkeladus sé lífvænlegt og við verðum að fara aftur og rannsaka það frekar,“ segir Hunter Waite sem tekur þátt í rannsóknarverkefni Cassini-geimfarsins. „Og ef það er ekkert líf, af hverju ekki? Og ef það er líf, þá er það bara betra.“