Rannsakendur við Oxford-háskóla í Bretlandi hefja tilraunir með bóluefni gegn kórónuveirunni á mannfólki síðar í vikunni. Bresk yfirvöld verja yfir 40 milljónum punda, eða sem nemur rúmum sjö milljörðum króna, í tvö rannsóknarverkefni sem miða að því að þróa bóluefni gegn veirunni.
Hinn rannsóknarhópurinn er með aðsetur í Imperial College í London og auglýst hefur verið eftir sjálfboðaliðum á aldrinum 18-55 ára til þáttöku í tilraunameðferðinni. Þeim er heitið á bilinu 190 til 625 pund fyrir þátttökuna, jafnvirði 34-112 þúsund króna, allt eftir því hverjar niðurstöðurnar verða.
The Imperial College NHS Trust are looking for healthy volunteers to participate in a #COVID19 #vaccine trial, for which they will receive up to £190-£625 reimbursement for time, travel and contribution to the trial. (1/2)
— Imperial Medicine (@ImperialMed) April 21, 2020
Matt Hancock, heilbrigðisráðherra Bretlands, sagði á upplýsingafundi í dag að hann væri himinlifandi yfir því að tilraunir Oxford-rannsóknarhópsins hefjist síðar í vikunni.
Prófessor Sarah Gilbert fer fyrir rannsóknarhópnum sem hóf rannsóknir í janúar þegar erfðalykill veirunnar varð aðgengilegur. Vonir standa til að búið verði að prófa bóluefnið á 500 sjálfboðaliðum um miðjan maí. Ef þær prófanir lofa góðu verður bóluefnið prófað áfram á fleiri sjálfboðaliðum.
Fjöldi staðfestra kórónuveirusmita í heiminum er kominn yfir 2,5 milljónir og 171.810 hafa látið lífið af völdum veirunnar.