Vefurinn Ísland.is, sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi, hefur verið opnaður í nýrri og endurbættri útgáfu með það að markmiði að gera viðmót gagnvart notendum skýrara og betra.
Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Þar segir, að á vefnum eigi að vera auðvelt að finna það sem leitað sé að og eru þrjár meginleiðir til að finna efni. Sú fyrsta er í gegnum lífsviðburði, svo sem upplýsingar um nám, flutninga, barneignir eða stofnun fyrirtækja.
„Þá er búið að skilgreina helstu þjónustuflokka á vefnum, t.d. um akstur og bifreiðar, fjármál og skatta, heilbrigðismál og fjölskyldu og velferð. Ennfremur hefur leit á vefnum verið styrkt og er auðvelt að sækja upplýsingar í gegnum hana.
Vefurinn er gefinn út í beta-útgáfu. Í því felst að hann er enn í þróun og eru ábendingar notenda vel þegnar,“ segir í tilkynningu.