Eins og oft gerist þegar fyrstu laxagöngurnar koma í Sogið þá fylgir þeim gjarnan selur og svo virðist vera núna eins og undanfarin ár að með fyrstu löxunum koma fyrstu selirnir.
Veiðimaður sem var á ferð í Þrastalundi sendi okkur línu og lét vita af selaferðum þar. Það fréttist að selir hefðu sést á Bíldsfellinu en við höfum ekki fengið það staðfest hvort það sé búið að skjóta þá eða ekki. Við viljum endilega koma því á framfæri að á vegum SVFR eru skyttur sem hafa séð um að skjóta sel þegar hann sést á svæðinu og veiðimenn því hvattir til að hafa samband við skrifstofu og láta vita af selaferðum.
Við höfum ekki haft neinar fregnir af veiði í opnun Sogsins en það er ekki víst að hún hafi verið mikil ef það var selur á svæðinu. Það er þó vonandi búið að skjóta selinn svo laxinn komist hindrunarlaust í ána.
Hvaða skoðun sem menn hafa svo sem á sel þá er það ótrúlega merkilegt hvað selurinn er þrautseigur að ganga langt inní land eftir uppáhaldsbráðinni.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Mýrarkvísl | Tim Racie | 23. júlí 23.7. |
102 cm | Víðidalsá | Ragnheiður Þengilsdóttir | 14. júlí 14.7. |
106 cm | Laxá í Aðaldal | Kristrún Ólöf Sigurðardóttir | 8. júlí 8.7. |
100 cm | Blanda | Patrick Devennie | 20. júní 20.6. |
100 cm | Kjarrá | Sigurður Smári Gylfason | 19. júní 19.6. |
Veiðiárið 2023: | |||
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |