Hundraðkallar eða fjallkonur?

Robert Taubman í sjöunda himni með hrygnuna stóru. Hún virkar …
Robert Taubman í sjöunda himni með hrygnuna stóru. Hún virkar meira bara hissa á þessari athygli. Hún tók svartan Sunray í Grundarhorni. Ljósmynd/ÁPH

Hann Robert Taubman átti draumaaugnablikið í gær þegar 103 sentímetra hrygna tók svarta Sunrayinn hans í Grundarhorninu í Laxá í Aðaldal. Leiðsögumaður með honum var Árni Pétur Hilmarsson, Nesmaður og einn af rekstraraðilum Laxár.

Myndin af Robert með laxinn er gulls ígildi. Brosið er nánast endalaust og þessi langa og mikla hrygna var stífmæld af Árna Pétri. „Kallinn var bara ekki að ná að halda henni almennilega og böglaðist alltaf í höndunum á honum,“ hló Árni Pétur þegar við spurðum hann út í mælinguna. 

Þetta er fjórði hundraðkallinn sem veiðist í Aðaldal í sumar og annar laxinn sem mælist 103 sentímetrar. Það er mun sjaldgæfara að hrygnur verði svo stórar og því setjum við hana skör ofar en hænginn sem veiddist í Fosspolli þann 19. júlí og var líka skráður 103 sentímetrar.

Reyndur veiðimaður hafði samband við Sporðaköst og taldi ótækt að hrygnur féllu í flokkinn hundraðkallar ef þær ná hundrað sentímetrum eða meira. Vildi hann að þær yrðu kallaðar fjallkonur. Þeirri hugmynd var hafnað.

Enn og aftur hvetjum við veiðifólk og þá ekki síst leiðsögumenn til að vanda til mælinga og myndtöku á þessum merkisfiskum sem ná hundrað sentímetrum. Sporðköstum hafa borist myndir af fiskum sem hafa verið mældir í þessari stærð, en vantað hefur vitni til að staðfesta mælingu. Þá eru fiskarnir ekki lengur skráðir á hundraðkallalistann.

Hafandi skrifað þetta hvetjum við fólk til að halda áfram að senda okkur myndir af þessum allra stærstu fiskum Íslands.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert