Húnavatnssýslurnar að gefa stóralaxa

Theódór og Helgi leiðsögumaður með fyrsta hundraðkall sumarsins úr Miðfjarðará. …
Theódór og Helgi leiðsögumaður með fyrsta hundraðkall sumarsins úr Miðfjarðará. Í baksýn er Grjóthylur. Ljósmynd/María Guðjónsdóttir

Veiðimenn hafa verið að setja í töluvert af stórlaxi síðustu daga í húnvetnsku ánum. Staðfestur hundraðkall veiddist í Miðfjarðará í gær og var þar að verki Theódór Friðjónsson og setti hann í hundrað sentímetra fisk í Grjóthyl sem er magnaður veiðistaður í sjálfri Miðfjarðaránni. Honum til aðstoðar var Helgi Guðbrandsson þaulreyndur leiðsögumaður í Miðfirði. Laxinn var þrímældur af Helga og stóð slétta hundrað sentímetra. Ummálið mældist 51 sentímetri. Að sögn Theódórs var þetta fremur snörp og stutt viðureign og var lokið á tólf mínútum. Þetta er fyrsti laxinn í sumar sem nær þessari stærð í Miðfirði. 

Stirtlan á þessum fiskum er svo þykk að er ekki …
Stirtlan á þessum fiskum er svo þykk að er ekki hægt að loka gripi um hana. Helgi leiðsögumaður þrí mældi þennan fisk. Ljósmynd/María Guðjónsdóttir

Veiðin síðustu daga hefur verið upp á við í Miðfirði og hafa dagar þar gefið yfir þrjátíu laxa upp á síðkastið. Heilt yfir veiðin byrjað rólega í Miðfirði miðað við það sem veiðimenn eiga að venjast á þeim slóðum.

102 sentímetra hængur veiddist í Vatnsdalsá í vikunni og var það við Bjarnastein. Erlendur veiðimaður landaði fiskinum en var einn á ferð. Nokkrir fiskar í þessum stærðarflokki hafa sést í Vatnsdalnum í sumar og viðbúið að þeir verði tökuglaðari þegar myrkrið fer aftur að mæta og daginn að stytta.

Þessi mynd er tilvalin til stækkunar, sagði oft þegar filmumyndir …
Þessi mynd er tilvalin til stækkunar, sagði oft þegar filmumyndir komu úr framköllun hér áður fyrr. Það á svo sannarlega við um þessa mynd. Ljósmynd/María Guðjónsdóttir

Blanda hefur gefið flotta stórlaxa veiði síðustu daga. 101 sentímetra fiskur veiddist á Breiðunni að norðanverðu á Collie Dog og í fyrradag kom svo 99 sentímetra fiskur af Breiðunni að sunnanverðu og tók sá fiskur fluguna Valbein.

Margir af þessum stórlöxum eru greinilega búnir að vera um nokkra stund í ánum og líklegt að vatnavextir síðustu daga og haustleg norðanáttin hafi hreyft við þeim. Oft eru þessir fiskar nánast límdir við botninn yfir hásumarið og detta ekki inn í veiðina fyrr en sumarið er við það að segja sitt síðasta. Sá tími er undir lok ágúst og er alltaf spennandi þegar sá tími rennur upp.

Frúin með hrygnuna verklegu. Nú var Teddi myndasmiðurinn.
Frúin með hrygnuna verklegu. Nú var Teddi myndasmiðurinn. Ljósmynd/Theódór Friðjónsson

UPPFÆRT

Gaman að bæta því að í morgun snerust hlutverkin við hjá þeim Theódór og Maríu. Hann myndaði og hún var fyrirsæta. María setti í og landaði glæsilegri 87 sentímetra hrygnu og Theódór tók þessa mynd sem hér fylgir. Skilaboðin með henni voru: „Miðfjarðará að gera vel við okkur.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert