Ingimundur nýr framkvæmdastjóri SVFR

Ingimundur Bergsson nýráðinn framkvæmdastjóri SVFR tekur við lyklunum af Sigurþóri …
Ingimundur Bergsson nýráðinn framkvæmdastjóri SVFR tekur við lyklunum af Sigurþóri Gunnlaugssyni, sem var kvaddur með virktum þegar hann lét af störfum í dag. Ljósmynd/SVFR

Framkvæmdastjóraskipti urðu hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur í dag. Sigurþór Gunnlaugsson hætti eftir fjögurra ára starf og afhenti hann Ingimundi Bergssyni lyklana að skrifstofu félagsins í dag. Ingimundur er nýráðinn framkvæmdastjóri SVFR en hann hefur undanfarin misseri verið skrifstofustjóri félagsins og gegnt lykilhlutverki í sölu og þjónustu við félagsmenn.

Í frétt á heimsíðu SVFR er fráfarandi framkvæmdastjóri kvaddur og óskað velfarnaðar um leið og eftirmaður hans er kynntur til leiks. 

„„Það er mikil eftirsjá í Sissó, sem skilur við félagið í góðri stöðu eftir mikla vinnu undanfarin ár. Hann hefur tekist á við krefjandi verkefni af lipurð og festu, treyst stöðu SVFR og síðustu tvö rekstrarár eru þau bestu í sögu félagsins. Ég vil færa honum mínar innilegustu þakkir fyrir frábært samstarf og óska honum alls hins besta,“ segir Jón Þór Ólason, formaður SVFR.

Ingimund þekkja félagsmenn SVFR og aðrir veiðimenn vel. Hann er viðskiptafræðingur að mennt og hefur mikla reynslu úr veiðiheiminum. Hann er upphafsmaður og stofnandi Veiðikortsins, hefur komið að útgáfu veiðitímarita um árabil og þekkir vel til reksturs SVFR.

„Ingimundur er mikill fengur fyrir SVFR og ég vil bjóða hann velkominn til starfa sem framkvæmdastjóra félagsins. Hann býr að gríðarlegri reynslu, þekkingu og þjónustulund sem mun nýtast félagsmönnum vel. Hann hefur sett mikið mark á skrifstofu SVFR á undanförnum árum og ég hlakka til að sjá hann í nýju hlutverki,“ segir Jón Þór.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Lagarfljót Jóhannes Sturlaugsson 2. október 2.10.
100 cm Stóra - Laxá Vigfús Björnsson 30. september 30.9.
102 cm Laxá í Aðaldal Aðalsteinn Jóhannsson 19. september 19.9.
103 cm Víðidalsá Rob Williams 17. september 17.9.
101 cm Stóra - Laxá Jim Ray 16. september 16.9.
102 cm Víðidalsá Svanur Gíslason 15. september 15.9.
101 cm Miðfjarðará Stebbi Lísu 14. september 14.9.

Skoða meira