Innihaldsefni
4 stilkar sellerí
4 græn epli, skræld og kjarnhreinsuð
600 gr græn vínber
1 og 1/2 bolli saxaðar döðlur
1 og 1/2 - 2 bollar sýrður rjómi 18%
1/2 bolli ristaðar furuhnetur, pekanhnetur eða pistasíur
Vegan sýrður rjómi
1 bolli kasjúhnetur lagðar í bleyti yfir nótt
¼ bolli ferskur sítrónusafi, ef þið viljið þynna sýrða rjómann má setja 1-2 msk. í viðbót
¼ tsk. salt
1 tsk. næringarger
½ bolli kalt vatn
Saxið sellerí smátt og setjið í skál
Saxið eplin smátt og bátið saman við sellerí
Skerið vínberin í bita og takið steina úr ef þeir eru, og bætið við blönduna
Hellið döðlunum og sýrða rjómanum saman við og blandið vel saman
Ristið furuhneturnar og hellið yfir réttt áður en salatið er borið fram.
Þetta er stór uppskrift og dugar vel 6-8 manns svo ef þið eruð með færri í mat er gott að helminga hana, ég geri þó alltaf stóra því ég borða þetta sem morgunmat daginn eftir....elska þetta salat.