Geggjaðar humar- og túnfiskvefjur

Vefjurnar eru sérlega glæsilegar.
Vefjurnar eru sérlega glæsilegar. mbl.is/Karl Petersen.

Margir halda að það sé bara hægt að hægelda kjöt í þar til gerðum sous vide-græjum en það er alls ekki rétt. Hægt er að nota aðferðina á nánast allt eins og Viktor Örn Andrésarson gerir í Sous vide-bókinni sem komin er út. Þar sous vide-ar hann meðal annars grænmeti, fisk, sósur og já... bernaise-sósu.

Hér er uppskrift úr bókinni af humar- og túnfiskvefju sem er alveg hreint mögnuð og mun engan svíkja.

HUMAR- OG TÚNFISKVEFJUR

HUMARVEFJUR

  • 3 hveitikökur
  • Smá olía
  • Smá salt
  • 5 humarhalar, stærð 7-9
  • 1 vorlaukur
  • 1 rautt chilialdin
  • Japanskt majónes eftir smekk
  • 3 stilkar kóríander

TÚNFISKVEFJUR

  • 3 hveitikökur
  • Smá olía
  • Smá salt
  • 300 g túnfiskur
  • 1⁄2 mangó
  • Japanskt majónes eftir smekk
  • 3 stilkar steinselja

Aðferð:

1. Stillið hitajafnarann á 72°C.

2. Veltið túnfiskinum og humrinum upp úr olíu og salti og setjið í sinn hvorn pokann.

3. Eldið humarinn og túnfiskinn í 4 mínútur.

4. Takið úr pokunum, setjið á bakka og notið gasbrennara til að steikja túnfiskinn og humarinn lítillega.

5. Skerið humarinn og túnfiskinn í litla bita og setjið í hvort sína skálina.

6. Saxið restina af hráefninu fyrir humarvefjurnar og svo túnfiskvefjurnar í skálarnar.

7. Takið hveitikökurnar og stingið út litlar, kringlóttar kökur, um 10 cm að þvermáli.

8. Hitið kökurnar í örbylgjuofni eða á pönnu.

9. Deilið salötunum jafnt á milli vefjanna og setjið japanskt majónes ofan á eftir smekk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert