4 einföld skref til að byrja að flokka

Gramsað eftir dósum í ruslatunnum í Reykjavík.
Gramsað eftir dósum í ruslatunnum í Reykjavík. Haraldur Jónasson / Hari

Nú þegar ruslið flæðir um allt eftir jól og áramót er ekki úr vegi að fara yfir einfaldar leiðir til að byrja að flokka. Það er Sorpa sem gefur leiðbeiningarnar út en á vef Sorpu er jafnframt að finna viðamikinn stuðning fyrir flokkara ásamt ítarlegum leiðbeiningavef.

4 einföld skref til að byrja að flokka

Minnkaðu plastpokanotkun með margnota innkaupapoka.

  1. Það er ódýrara að kaupa rúllu af gráum ruslapokum en að kaupa poka við afgreiðslukassann. Vertu þér úti um ílát (poka) og aðstöðu fyrir daglega flokkun.
  2. Útsjónarsamir útbúa aðstöðu í eldhúsi, þvottahúsi eða bílskúr.
  3. Hreinsaðu umbúðir og rúmmálsminnkaðu fyrir flokkun til að koma í veg fyrir ólykt og óþarfa fyrirferð.
  4. Farðu reglulega í grenndargáma og á endurvinnslustöðvar. Þú sérð strax minnkun á úrgangi og verður meðvitaður um óþarfa umbúðir í innkaupum.

Margnota enduvinnslupokinn frá SORPU er unninn úr 85% endurunnu efni og tekur allt að 20 kg. Hann fæst gefins á næstu endurvinnslustöð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert