Myntugræni ísskápurinn toppaði umbreytinguna

Munurinn er mikill eins og sjá má.
Munurinn er mikill eins og sjá má. mbl.is/ApartmentTherapy

Vel heppnuð eldhúsumbreyting þarf ekki að kosta hvítuna úr augunum en getur hækkað verð fasteignar um háar upphæðir.

Hér má sjá eldhús í Brooklyn-hverfinu í New York þar sem ekki verður annað sagt en að gjörbreyting hafi átt sér stað. Stærsti munurinn er sjálfsagt málningarvinnan og lýsingin en á fyrri myndunum er fremur þungt og drungalegt yfir.

Eftir breytinguna er eldhúsið mjög bjart auk þess sem hurð var lokað ef eitthvað er að marka myndirnar. Í stað hurðarinnar er kominn myndarlegur krókur sem nýtist vel og svo er þessi ísskápur gríðarlega skemmtilegur og setur sterkan svip á eldhúsið.

Myntugræni ísskápurinn setur mikinn svip á eldhúsið.
Myntugræni ísskápurinn setur mikinn svip á eldhúsið. mbl.is/ApartmentTherapy
Dökkt og drungalegt gæti þetta eldhús hafa heitið.
Dökkt og drungalegt gæti þetta eldhús hafa heitið. mbl.is/ApartmentTherapy
Eldhúsið er virkilega bjart og fallegt.
Eldhúsið er virkilega bjart og fallegt. mbl.is/ApartmentTherapy
Þrátt fyrir myntugrænan vegg var eldhúsið ekki að gera sig.
Þrátt fyrir myntugrænan vegg var eldhúsið ekki að gera sig. mbl.is/ApartmentTherapy
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert