Gordon Ramsay tók eldhús samstarfskonu sinnar í gegn

Svona leit eldhúsið út áður en framkvæmdir hófust.
Svona leit eldhúsið út áður en framkvæmdir hófust. mbl.is/Houzz.com

Því virðast engin takmörk sett hvað Gordon Ramsay tekur sér fyrir hendur og á dögunum setti hann á sig góðgerðarskikkju og tók eldhúsið hjá Christina Wilson í gegn svo um munar.

Wilson sigraði í tíundu þáttaröðinni af Hell´s Kitchen og stýrir nú eldhúsinu á einum af veitingastöðum Ramsay í Las Vegas.

Wilson er frá Fíladelfíu og á þar raðhús þar sem hún er með annan fótinn. Hins vegar hafði Wilson ekki haft tíma til að taka húsið í gegn og því ákvað Ramsay í samstarfi við My Houzz að koma henni á óvart.

Eldhúsið og reyndar öll neðri hæðin er algjörlega geggjuð, með nýtískueldunartækjum, góðri rýmisnýtingu og þar fram eftir götunum.

Greinilegt er að Ramsay hugsar vel um starfsmenn sína en hér gefur að líta myndir og svo þáttinn í heild sinni.

Hurðin út í bakgarðinn gefur rýminu mikla birtu og svip.
Hurðin út í bakgarðinn gefur rýminu mikla birtu og svip. mbl.is/Houzz.com
Eldhúsið er bjart og fagurt með útdraganlegum vinnubekk sem er …
Eldhúsið er bjart og fagurt með útdraganlegum vinnubekk sem er algjör snilld. mbl.is/Houzz.com
Séð úr stofunni yfir í borðstofuna og eldhúsið.
Séð úr stofunni yfir í borðstofuna og eldhúsið. mbl.is/Houzz.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert