Kaldir litir í undurfallegu dönsku eldhúsi

Dökkblár veggur á ganginum myndar fallega mótsögn við bleika litinn. …
Dökkblár veggur á ganginum myndar fallega mótsögn við bleika litinn. Takið eftir léttvínsglasarekkanum á enda viftunnar. mbl.is/Entrancemakleri

Við höfum loks fundið hið fullkomna bleika eldhús. Það er vissulega bleikt en ekki væmið eða yfirgnæfandi. Mig hefur lengi dreymt um bleikt eldhús en hingað til hef ég ekki fundið lit sem ég myndi vilja sýna sambýlismanninum, en hér er hann kominn. Ískaldur og fölbleikur litur sem kallast svo fallega á við marmarann og hlýlegt viðargólfið í þessari guðdómlegu dönsku íbúð.

Blái liturinn á ganginum kallast skemmtilega á við bleika litinn í eldhúsinu. Hvort tveggja eru kaldir litir en ljóst viðargólfið gefur íbúðinni hlýjan tón á móti.

Stílhrein falleg innréttingin nær til lofts, nýtir því plássið vel og skilur ekki eftir leiðinlegt rými fyrir ofan innréttinguna sem gerir ekkert annað en að safna ryki. Takið eftir hvað listaverkið á veggnum í eldhúsinu og spegillinn gefa rýminu mikinn stíl og um leið gera eldhúsið hlýlegra. 

Einstaklega fallegt eldhús sem sýnir svo glögglega að bleikt er ekki bara bleikt. 

Fallegir smáhlutir gefa eldhúsinu persónulegan stíl.
Fallegir smáhlutir gefa eldhúsinu persónulegan stíl. mbl.is/Entrancemakleri
Nude-bleikir skáparnir eru stórkostlega fallegir. Bleikir án þess að vera …
Nude-bleikir skáparnir eru stórkostlega fallegir. Bleikir án þess að vera væmnir eða þreytandi. mbl.is/Entrancemakleri
Takið eftir fallegum speglinum frá Friends and founders.Winston Living hefur …
Takið eftir fallegum speglinum frá Friends and founders.Winston Living hefur selt það merki hérlendis. mbl.is/Entrancemakleri
Hlýlegir viðarstólar og borð mynda hlýju á móti köldum litunum …
Hlýlegir viðarstólar og borð mynda hlýju á móti köldum litunum í innréttingunni. mbl.is/Entrancemakleri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert