Vinsælustu innréttingarnar í Ikea

Afskaplega elegant og fallegt.
Afskaplega elegant og fallegt. mbl.is/Ikea

Hver ætli sé vinsælasta eldhúsinnréttingin í Ikea? Þegar stórt er spurt er ekki annað hægt en að komast að hinu sanna og svarið kemur svo sem ekki á óvart en að sögn Ikea eru vinsælustu innréttingarnar þeirra matt hvítar VOXTORP sem eru höldulausar og síðan háglansandi hvítar RINGHULT innréttingar. Greinilegt er að landsmenn eru enn fremur áhættufælnir í litavali sem er í góðu lagi en áhugavert verður að sjá hvernig listinn lítur út á komandi ári í ljósi þeirrar miklu litadýrðar sem nú er í öllum hönnunarblöðum.

Hvítar innréttingar eru mjög öruggur kostur og hægt er að skreyta þær rækilega með máluðum veggjum, opnum hillum eða hverju því sem viðkomandi dettur í hug.

Voxtorp innréttingin er stílhrein og falleg.
Voxtorp innréttingin er stílhrein og falleg. mbl.is/Ikea
Hér gefur að líta VOXTORP innréttinguna.
Hér gefur að líta VOXTORP innréttinguna. mbl.is/Ikea
Það er ekkert að þessu.
Það er ekkert að þessu. mbl.is/Ikea
Hér gefur að líta RINGHULT framhliðarnar sem eru háglansandi.
Hér gefur að líta RINGHULT framhliðarnar sem eru háglansandi. mbl.is/Ikea
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert