Tímamótaeldhús hönnunargúrús

Allt er gull sem glóir í þessu eldhúsi.
Allt er gull sem glóir í þessu eldhúsi. mbl.is/Apartment Therapy

Við vitum vel að mest seldu eldhúsinnréttingarnar hér á landi eru hvítar og afskaplega hefðbundnar og það er nákvæmlega ekkert að því. Eldhúsinnrétting er töluverð fjárfesting og því er snjallt að halda grunninum öruggum og leika sér þá frekar með fylgihluti, málningu og annað því um líkt sem kostar lítið að skipta út. 

Að því sögu er líka gaman að skoða eldhús sem eru eins langt frá skandinavísku naumhyggjunni og kostur er. Það eru eigendur hönnunarfyrirtækisins Kip & co sem státa af þessu eldhúsi sem er afskaplega mikið í þeirra anda. 

Hér sameinast litagleði, næmt auga, dirfska og hugvitssemi í einu eldhúsi og útkoman er rosaleg. 

Þessi samsetning er djörf og sjálfsagt þess eðlis að annaðhvort …
Þessi samsetning er djörf og sjálfsagt þess eðlis að annaðhvort elskar fólk hana eða bara alls ekki. mbl.is/Apartment Therapy
Gylltir skápar og mjög litríkur marmari.
Gylltir skápar og mjög litríkur marmari. mbl.is/Apartment Therapy
Eldhúsið er hið besta vinnueldhús.
Eldhúsið er hið besta vinnueldhús. mbl.is/Apartment Therapy
Það myndu fáir fúlsa við þessu.
Það myndu fáir fúlsa við þessu. mbl.is/Apartment Therapy
Opið er úr eldhúsinu yfir í stofuna.
Opið er úr eldhúsinu yfir í stofuna. mbl.is/Apartment Therapy
Gróft fiskibeinaparket er á gólfunum.
Gróft fiskibeinaparket er á gólfunum. mbl.is/Apartment Therapy
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert