Ofnsteikt kalkúnabringa

Kalkúnn er dásamlegur - bæði hversdags og í veisluna.
Kalkúnn er dásamlegur - bæði hversdags og í veisluna. mbl.is/Árni Sæberg

Kalkúnn er í uppáhaldi hjá mörgum - ekki síst þegar mikið stendur til. Hér gefur að líta hlægilega einfalda uppskrift að kalkúni sem allir ættu að ráða við en bragðast einstaklega vel.

Ofnsteikt kalkúnabringa

  • Kalkúnabringa
  • Bezt á kalkúninn
  • Salt og pipar
  • Smjör

Aðferð: 

  1. Kalkúnabringan er tekin og skoluð undir köldu rennandi vatni.
  2. Þerruð og krydduð með bezt á kalkúninn, gott er að láta kjötið marinerast í kryddblöndunni í nokkrar klukkustundir áður en sett í ofninn.
  3. Ofninn er forhitaður í 140°c m. Blæstri ef ofninn er ekki blástursofn skal hækka hitann um 10-20°c
  4. Kalkúnabringan er sett í eldfastmót krydduð með salt og pipar, síðan væn sneið af smjöri sett ofan á hana miðja.
  5. Bringan skal elduð að kjarnhita 71°c eða því sem nemur 40-45 mín á hvert kíló
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert