Bakaði afmæliskökuna sjálf

Teigen ásamt dóttur sinni Lunu og kökunni góðu.
Teigen ásamt dóttur sinni Lunu og kökunni góðu. mbl.is/samsett af Instragram

Fræga fólkið er þekkt fyrir að nýta sér vel og rækilega þjónustu annarra – þá ekki síst þegar hægt er að kynna vörurnar í leiðinni og fá herlegheitin frítt og jafnvel greitt með.

En ekki Chrissy Teigen. Þrátt fyrir að vera kasólétt af sínu öðru barni snaraði Teigen fram afmælisveislu sem fær flesta til að roðna af öfund. Þemað var Sesame Street-þættirnir og það sem betra er – þá bakaði Teigen kökuna sjálf. 

Í alvöru? Kunna margir að spyrja og efast. En undirrituð skemmti sér konunglega við að fylgjast með Teigen að störfum á my story á Instagram þar sem farið var yfir kökugerðina skref fyrir skref auk þess að sýna undirbúninginn. 

Ég get því staðfest að baksturinn er 100% hennar og greinilegt að frú Teigen er jafnflink í eldhúsinu og ég reyndar vissi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert