Það er fátt meira lekkert en eldhús sem líður áfram - úr eldhúsinu og úr á pall. Það þýðir gott fólk að hægt er að halda eldamennskunni áfram utandyra eins og ekkert hafi í skorist og til að toppa herlegheitin er vinnusvæðið allt falið á bak við marmaraplötu og þetta er svo fagurt að við spáum því að þetta verði heitasta trendið meðal heldra fólks hér á landi von bráðar.
Eldhúsið kemur frá Rossina á Ítalíu og kallast K-IN / K-OUT.
Gríðarlega vel heppnuð, stílhrein og snjöll hönnun með mikið notagildi eins og sjá má.