Ferskt íslenskt lífrænt pasta loks fáanlegt

Karen Jónsdóttir í Matarbúri Kaju á Akranesi.
Karen Jónsdóttir í Matarbúri Kaju á Akranesi. Haraldur Jónasson/Hari

Uppruna pastans má rekja til Hreðarvatnsskála sem framleiddi Norðurárdalspasta. Í nóvember síðastliðnum ákvað Karen að kaupa framleiðsluna og hefja sína eigin. Karen hefur undanfarin ár rekið verslunina Matarbúr Kaju, innflutningsfyrirtækið Kaja Organic auk kaffihússins Kaffi Kaja. Þetta var því að öllu leyti rökrétt skref hjá Karen sem er ötull talsmaður holls mataræðis og minni matarsóunar.

Tíu sinnum betra

„Eftir kennslu í pastagerð komst ég fljótlega að því að ferskt pasta er tíu sinnum betra en þurrkað. Hófst þá afar skemmtilegt þróunarverkefni þar sem markmiðið var að framleiða ferskt pasta í neytendaumbúðum,“ segir Karen aðspurð um sín fyrstu skref í pastagerð.

„Ég veit ekki til þess að það hafi verið gert hér á landi áður en þetta er alla vega í fyrsta skipti sem lífrænt pasta er framleitt hérlendis.“

„Ég sótti um styrk frá Sóknaráætlun Vesturlands til þróunar og þegar það var í höfn var hafist handa. Fljótlega kom í ljós að breyta þyrfti uppskriftinni lítillega og var það gert í samvinnu við veitingastaðinn Galito en hann býður upp á pastarétti úr lífrænu pasta frá okkur.“

Í upphafi framleiddi Karen pastað eingöngu fyrir veitingastaði en fór svo í kjölfarið að velta því fyrir sér hvernig henni tækist að koma fersku pastanu í verslanir.

„Stærsta áskorunin var svo pökkunin en vélbúnaðurinn til pökkunar kostar tugi miljóna og hefur afkastagetu sem er langt umfram okkar litla markað. Það þurfti því að hugsa í lausnum og að lokum ákváðum við að velja vakúm-pökkun sem gekk upp.“

Næsta skref var svo að finna réttu umbúðirnar sem gekk fremur illa að sögn Karenar. „Markmiðið var að hafa þær umhverfisvænar og eftir mikla leit fundum við loks ásættanlega lausn sem fólst í því að nota pappabakka í stað plasts en vakúmpokinn sjálfur er úr plasti þar sem engin önnur lausn er enn til.“

Ferska pastað smakkast tíu sinnum betur að söng Karenar.
Ferska pastað smakkast tíu sinnum betur að söng Karenar. Haraldur Jónasson/Hari

Ekkert fer til spillis

„Samkvæmt úttekt hjá Matvælastofnun endist ferska pastað í þrjár vikur. Ég dreifi því í verslanir en tek það sem er óselt til baka eftir tvær vikur og þurrka. Með því móti fer ekkert til spillis og matarsóun er í algjöru lágmarki,“ segir Karen og ljóst er að framtíðin er björt enda ferskt lífrænt pasta afskaplega gott á bragðið svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Í dag fæst pastað í Hagkaupum, Melabúðinni, Fjarðarkaupum, Bændur í bænum, Heilsuhúsinu Laugavegi og Kringlunni og í Matarbúri Kaju á Akranesi.

Matbúr Kaju á Akranesi.
Matbúr Kaju á Akranesi. Haraldur Jónasson/Hari
Haraldur Jónasson/Hari
Í Matbúri Kaju kennir ýmissa grasa.
Í Matbúri Kaju kennir ýmissa grasa. Haraldur Jónasson/Hari
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert