Veisluborð í frábæru fótboltaþema

mbl.is/evite

Það er misjafn metnaðurinn hjá fólki, á meðan sumir láta nægja að henda í eina eðlu fyrir stóra leikinn og kæla nokkra bjóra eða gos, taka aðrir gleðina aðeins lengra. Hér eru nokkrar hugmyndir fyrir þá sem vilja láta hendur standa fram úr ermum hvað varðar veisluhöld fyrir stóra leikinn á föstudaginn. Sá sem stóð að þessu fallega veisluborði í fótboltaþema verður seint sakaður um metnaðarleysi. 

mbl.is/evite

Svartur og hvítur smellpassar við fótboltaþema. Ef þið eigið til röndóttan borðdúk í svörtu og hvítu kemur það mjög sportlega út. Svo klikkar ekki að bæta við blöðrum í svörtu og hvítu. 

mbl.is/evite

Gervigras er miðpunktur borðsins, það má auðveldlega íslenska þetta borðskraut og föndra með röndóttum sogrörum, útprentuðum stöfum í fallegu letri, skærum og lími. Áfram Ísland! 

mbl.is/evite

Grænar servíettur færu afar vel á þessu borði. Svo er sniðugt að bjóða upp á bjór frá þeim löndum sem eru að keppa. Spurning hvort hægt sé að næla sér í nígerískan mjöð einhvers staðar? Útprentaðar myndir af eftirlætisleikmönnum koma skemmtilega út á veisluborðinu og eru líklegar til að brjóta ísinn og koma af stað fjörugum samræðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert