Hópurinn Matartips! á Facebook telur nú um 30 þúsund meðlimi og eru þar alla jafna líflegar umræður um allt sem viðkemur mat, uppskriftum, hráefni, veitingastöðum og nú... ný-yrðum.
Jóhannes Ásbjörnsson - betur þekktur sem Jói á Hamborgarafabrikkunni biðlaði til Matartipsara og bað um aðstoð við þýðingu á enska orðinu relish þar sem hann er að þróa sína eigin alíslensku blöndu.
Viðtökurnar stóðu undir væntingum og gott betur og hér gefur að líta nokkrar af heitustu tillögunum:
Eins og sjá má er enginn skortur á snjöllum hugmyndum og spennandi verður að sjá hvaða tillaga verður fyrir valinu.